Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Lærum af mistökum annarra
Síðustu daga hefur umræðan um upptöku skólagjalda í opinberum háskólum verið áberandi, í fjölmiðlum og á bloggsíðum samfélagsspekúlanta. Á forsíðu Fréttablaðsins,13.apríl síðastliðinn, var vitnað í Sigurð Kára Kristjánsson, formann Menntamálanefndar Alþingis, sem sagði að upptaka skólagjalda við opinbera háskóla væri aðeins tímaspursmál. Er upptaka skólagjalda það óumflýjanleg að hún sé talin tímaspursmál? Það er rétt að samkeppnisstaða háskólanna er skökk og að opinberir háskólar þurfa aukið fjármagn til að geta setið við sama borð,en af hverju í ósköpunum liggur það beinast við að stúdentar axli ábyrgð á fjárhagsvanda opinberra háskóla? Ætti það ekki frekar að vera ríkið?
Það býr vissulega eitthvað annað að baki. Skólagjaldasinnar hafa þulið upp rök fyrir því hvernig upptaka skólagjalda muni umturna háskólasamfélaginu á þann veg að eftir nokkur ár munu hér vera miklu betri háskólar, sem bjóða upp á miklu betra nám og útskrifa miklu klárari nemendur. Samkvæmt þeim eiga skólagjöld því ekki aðeins að leysa fjárhagsvandann heldur einnig að bæta háskólasamfélagið til muna. Þeir segja að upptaka skólagjalda komi til með að auka afköst stúdenta í námi, séu aukin hvatning við stúdenta, auka skilvirkni háskóla og gæði náms. Þeir sem eruá móti upptöku skólagjalda hafa aftur á móti bent á það að þau skerði jafnrétti til náms og aðgang að menntun, stýri námsvali einstaklinga, og dragi úr gæðum náms.
Hver hefur rétt fyrir sér?
Á síðustu árum hafa skólagjöld verið tekin upp víða í Evrópu og hefur upptaka þeirra alls staðar verið reist á sömu rökum og heyrast hátt í íslensku þjóðfélagi í dag. Undir lok síðasta árs var gerð könnun meðal landsamtaka stúdenta allra ríkja Evrópu þar sem viðhorf til skólagjalda og áhrifa þeirra var kannað. Þar kom í ljós að 92% stúdentahreyfinga telja upptöku skólagjalda skerða aðgang að menntun, 87% telja þau hafa slæm áhrif á félagslega stöðu stúdenta, og 74% telja þau hafa áhrif á námsval einstaklinga. Í þeim löndum sem tekið hafa upp skólagjöld, fullyrða stúdentahreyfingar að skólagjöld séu aðeins enn einn steinn í götu þeirra sem mæta misrétti í háskólakerfinu eða búa við slæmar félags- og efnahagslegar aðstæður. Þeir örfáu úr þessum hóp, sem þrátt fyrir slagandi áhrif skólagjalda skrá sig í háskóla, byggja námsval sitt nú nær undantekningarlaust á arðbærni námsins en ekki á áhuga eða hæfileikum.
Með þessu dæmi getum við hafnað þeim rökum skólagjaldasinna að skólagjöld séu aukin hvatning fyrir stúdenta. Skólagjöld hvorki bæta frammistöðu stúdenta, né auka skilvirkni háskólakerfisins, heldur setja þau aukna pressu á stúdenta að klára námið sitt á eins stuttum tíma og mögulegt er. Fjárhagslegar hömlur þrengja að stúdentum og þvinga þá ekki aðeins til að vinna með námi heldur einnig að klára það á „réttum" tíma. Þetta verður til þess að stúdentar ná ekki þeim árangri sem þeir vilja ná og að háskólarnir útskrifa ekki nemendur með jafnháar einkunnir og áður, nema þeir auðvitað dragi úr hæfniskröfunum og þar með minnki gæði náms.
Það er pís of keik að taka lán!
Það gera sér allir grein fyrir því að skólagjöld skerða jafnrétti til náms, enda hafa ekki allir efni á því að greiða skólagjöld. Skólagjaldasinnar telja lausnina við þessum vanda vera einfalda: að lána fyrir skólagjöldum. Lán þarf samt að borga til baka, og lán krefjast þess að þú sért með ábyrgðarmann. Stúdentahreyfingar í Evrópu hafa allar fullyrt það að þau lán og styrkir sem standa stúdentum til boða dugi ekki bæði fyrir skólagjöldum og framfærslukostnaði. Auk þess hafa skólagjöld dregið verulega úr því að fólk sæki sér menntun síðar á lífsleiðinni, en það forðast að bæta mánaðarlegum afborgunum skólagjaldalána við afborganir húsnæðislána, bílakaupalána og tölvukaupalána. Það er því nokkuð ljóst að lán fyrir skólagjöldum munu aldrei koma í veg fyrir það að jafnréttitil náms skerðist.
Við erum ekki ein í heiminum
Það er ekki eins og við séum eina þjóðin í heiminum sem hefur velt fyrir sér upptöku skólagjalda. Stöldrum aðeins við áður en við dembum okkur út í óvissuna, sem er kannski ekkert svo óviss eftir allt saman? Nei, það eina sem við þurfum að gera er að læra af mistökum annarra.
Heimild:
European Students' Union. 2008: Lisbon With Students Eyes.
Þessi grein birtist á www.vefritid.is 17.apríl 2008
.
|
Heitar umræður um skólagjöld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007
Þetta er búið!! ókei?!
hættið nú að fara inn á þetta blogg!! Ég sé alveg að þið eruð að koma hingað! Það er ekkert að gerast hérna lengur! Farið frekar á www.ungfrualma.blogspot.com
takk fyrir og bless!
og einn svona að lokum 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 7. ágúst 2007
síðasta færslan á Ölmubók
Mér finnst moggabloggið viðbjóðslegt. Það byrjaði sem saklaus síða fyrir saklaust fólk sem vildi halda úti saklausum netdagbókum. Svona eins og flestallar netdagbækur þess tíma. Það sem var frábrugðið var þó það að með því að halda úti mogganetdagbók þá gátu áhugasamir skrifað við frétt og þannig orðið stjörnur á mbl.is í tvær mínútur. Þetta heillaði sko lýðinn og í dag eiga nánast allir Íslendingar moggablogg. Núna hafa allir skoðun á öllu og enginn heldur þeim fyrir sjálfan sig. En þetta eru ekki einu sinni skoðanir heldur staðhæfingar. Órökstuddar og dónalegar útúrkú fullyrðingar. Fólk rífst og fullyrðir, virðir ekki skoðanir annara og líður eins og merkustu fræðimönnum og vitringum alheimssögunnar.
Það sem mér finnst allra verst eru allir þessir þúsund trilljón billjón kallar sem hafa ekkert annað við tíma sinn að gera en að leggja einhliða athugasemdir inn á þúsundir blogga fólks sem það þekkir ekki neitt. Haldandi að þeir séu fróðustu menn heims en ráðast þó nánast aðeins á garðinn þar sem þeir halda að hann sé lægstur: hjá ungum konum. Þar halda þeir að þeir geti athafnað sig vandkvæðalaust, skotið skoðanir og kenningar ungra vitlausra stúlkna í sandinn og allt svo að draumurinn um að vera klárastur, frægastur eða fróðastur rætist í allavega eina sekúndu í höfði þeirra. Útkoman er dónalegar rökleysur og kolrangar fullyrðingar. Athugasemdir sem enginn þeirra myndi þora að hreyta framan í bláókunnuga manneskju úti á götu en á netinu er allt leyfilegt og siðferðisleg sjónarmið í skammarlega miklu lágmarki. Það óskar heldur enginn eftir þessum tilgangslausu, dónalegu, einhliða athugasemdum sem oft er að finna í nákvæmlega sömu útgáfu á tíu öðrum bloggsíðum. Öllum er sama, enginn fer aftur inn á síðu viðkomandi til að skíta yfir færslurnar hans.
Aldrei hef ég óskað eftir því að ókunnugar karlrembur valsi inn á bloggsíðuna mína, kalli mig femínistahóru, óski þess að ég drepist, segi mér að éta úldinn fund eða skrifi allt of langa kolranga bullathugasemd sem hefst á orðum eins og "nei þú ert bara að misskilja allt í heiminum litla vitlausa stelpuskjátan þín, þetta er svona og svona og svona....þá veistu það litla grey og ekki bulla svona mikið aftur það er ekki hollt fyrir svona litlar og sætar stelpur."
Því er ég hætt að blogga hér og mun endurvekja hina frábæru síðu ABSOLUT AUTOKÜHL þar sem gleðin ræður ríkjum og enginn hótar að drepa mig (vonandi).
Ég enda þessa færslu á orðum sem passa fullkomlega inn í siðmenningu moggabloggsins:
FOKK OFF
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 5. júlí 2007
frá Grundarstíg til Litháen með UFO?
Ég fór í frisbí í gær á Klambratúni með góðum hópi fólks. Við erum ekki að tala um kasta-á-milli-frisbí heldur ultimate frisbee í liðum og læti. Ég spilaði þetta stundum í líkamsrækt í MH í den (af því að ég vildi ekki fara í fótbolta), en ég var búin að gleyma því hvað þetta er gaman. Ég verð svo tryllt í svona leikjum. Er alltaf eitthvað að reyna að fórna mér, sem endar oft illa, en ég veit samt aldrei hver staðan er. Svala kýldi mig, ég brákaðist svo eilítið á þumalputta og í dag get ég naumlega gengið, staðið upp, andað, haldið á hlutum eða snúið hausnum vegna harðsperra (aumingi?). Þetta var gaman gaman!
Ég flutti svo á Grundarstíginn í íbúðina hennar Höllu á þriðjudaginn, en ég og Björg ætlum að passa hana í einn og hálfan mánuð (íbúðina, ekki Höllu). Halla er sem sagt farin í honeymoon til Sidney. Allir velkomnir í kaffi og ópal skot.
Annars er gellan bara að fara til Litháen á morgun í hösslferð!! Vúúúhú! Djók, er að fara í bisnessferð að bisnessleidíast..! Þetta verður nú samt mikið stuð og ég hlakka mikið til. Svona ferðir eru alltaf þannig að það eru fundir og fyrirlestrar frá morgni til kvölds, svo er kvöldmatur og svo þarf maður að vera ótrúlega hress og sósíal og djamma rosa mikið langt fram á morgun... og mæta svo á næsta fund tveimur tímum seinna. Þessir evrópsku stúdentar geta sko drukkið! Ég tala nú ekki um þegar fólk er að pína mann til að smakka "traditional Ukranian Vodka with pepper" eða "traditional Serbian blueberrywhiskey" eða þegar Lettarnir bjóða öllum uppá dry vodka skot með morgunmatnum...aaaaaaaaalmáttugur...og að sjálfsögðu er maður dónalegur ef maður segir nei takk.
Heyrðu hérna fann ég mynd af þessum alræmda peppervodka sem ég var að tala um!! Nákvæmlega þessi!! Alveg hreint viðbjóðslegt og í því eru í alvöru svona 10 rauðir piprar (piparar? pipararar? piprarar? hmmm..) sem brenna gat á magann. Aldrei fá þér svona!
Bless sjáumst.
ps. Frisbífélag Háskólans heitir UFO! (Ultimate Frisbee Organization)..hahahaha ég sá það í heimabankanum þegar ég greiddi þeim styrk úr stúdentasjóði. Mér finnst það fyndið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 29. júní 2007
atjúúúúúú
Úff ég er með svo mikið ofnæmi fyrir sumrinu. Þetta er svo fokking ósanngjarnt!!! Ég þarf að velja á milli þess að annað hvort vera að deyja úr ofnæmi allt sumarið eða vera sljó og þreytt af ofnæmislyfjum allt sumarið. Ég kýs að gera það til skiptis. Hversu sniðugt sem það svo er.
Ofnæmi lýsir sér meðal annars svona.
já eða svona! Takið eftir að það kemur bæði úr nefinu og munninum á karlgreyinu!!
En ef við gleymum ofnæminu í smá stund...
Í kvöld er Brendan Ástrali (..."do you come from the land down under..") að halda kveðjupartí á Grundarstígnum. Við ætlum að flytja skemmtiatriði í partíinu. Við ætlum að flytja byrjunaratriðið úr Skippy. Sjáið það hér! (ég kann ekki að setja myndbönd af YouTube inn á bloggið..).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
f-orðið
Þetta moggablogg er búið að eyðileggja íslenska bloggheiminn, og mbl.is. Það er stútfullt af köllum sem hafa ekkert betra við tíma sinn að gera en að flakka á milli bloggsíða og stökkva svo til um leið og einhver minnist á f-orðið. Þá setja þeir sig í hlutverk andfemínistalöggunnar sem hefur miklu meira vit á jafnréttismálum en þessir nautheimsku femínistar (sem þeir halda að séu bara konur, og bara konur sem eru virkir meðlimir femínistafélagsins.. túlkun þeirra nær svo skammt). En svo kippa þeir sér ekkert upp við það að það eru bara karlar sem fylla þessi kommentakerfi.
Þeir eru ósammála öllu því sem þessar rauðsokkubeljur segja, enda eru íslenskir femínistar allt of öfgafullir, ekki satt? En þessar andfemínistalöggur eru alls ekki öfgafullar, er það nokkuð?
Þessir kallar eru á móti öllum sértækum aðgerður sem eiga að stuðla að auknu jafnrétti og eru líka á móti öllum boðum og bönnum gegn til dæmis klámi og einkadanski. Þar er verið að skerða frelsi einstaklingsins. Einstaklingur má hafa frelsi svo framarlega sem það skaðar ekki aðra. Og það er enginn að fara að þræta gegn því að það sé hægt að tengja klám og hlutgervingu kvenna við nauðganir og kynbundinn launamun. Þannig er það bara.
Ég fyllist vonleysi í hvert sinn sem ég heyri þessi rök "kynjakvótar stuðla að misrétti, það á miklu frekar að dæma einstaklinga eftir eigin verðleikum en eftir kyni, þannig stuðlum við að auknu jafnrétti". Ég fyllist vonleysi vegna þess að þetta sýnir okkur hversu lítið fólk veit almennt um jafnrétti kynjanna. Eins og það sé ekki von allra að einstaklingar séu dæmdir eftir eigin verðleikum en ekki eftir kyni?? Það er nákvæmlega það sem við viljum, en þannig er það ekki! Mismunun á grundvelli kynferðis er samfélagsvandamál sem verður að takast á við í sameiningu. Hvernig?
Nú þegar eru til staðar í samfélaginu "ósýnilegir kynjakvótar" sem hygla körlum. Það er bara þannig að karlar ráða frekar karla og konur ráða ekki frekar konur. Það er endalaust verið að gefa út kannanir og rannsóknir á kynbundnum launamun, lóðréttum og láréttum, með uggvænlegum niðurstöðum sem ekki er hægt að útskýra með öðru en kyni. Já, dæmum fólk eftir eigin verðleikum, en ekki eftir kyni. Góð hugmynd!
Persónulega lít ég þannig á kynjakvóta að þeir séu svar við þessum ósýnilegu kynjakvótum sem eru í samfélaginu nú þegar. Þeir eiga að hygla konum þar sem á þær hallar, alveg eins og samfélagið hyglir körlum. Það sem stuðar fólk svona rosalega er að þessir kynjakvótar eru sýnilegir og við notum þá meðvitað á meðan kynjakvótar samfélagsins eru ósýnilegir og notaðir ómeðvitað. Kynjakvótar eru hugsaðir sem neyðarúrræði og eiga að neyða fólk til að vera meðvitað um kynjahlutföll. Um leið og fólki er það eðlislægt að kynjahlutföll eigi að vera nokkurn veginn jöfn, (þ.e. um leið og fólk fær þau skilaboð frá samfélaginu að það eigi að vera jöfn kynjahlutföll, um leið og það er norm) þá getum við afnumið sýnilegu kynjakvótana. Kynjakvótar eru ein hugmynd til að jafna hlut kynjanna, og eins og er sú raunhæfasta.
Flestir gera sér líka ekki grein fyrir því að kynjakvótar eiga að vera notaðir þannig að séu tveir einstaklingar jafn hæfir, að þá eigi að ráða kynið sem á hallar. Það er ekki verið að ráða óhæfa konu fram yfir hæfan karlmann. Af hverju er þetta svona ósanngjarnt? Er þá ekki alveg jafn ósanngjarnt að án kynjakvótanna sé maðurinn frekar ráðinn en konan sem er jafn hæf? Á hvaða forsendum er það? Hann var kannski öruggari í viðtalinu og ákveðnari? Eða kannski bara af því að ómeðvitað treysti ráðningaraðilinn bara manninum betur? Þetta gerist á hverjum degi á þennan hátt!
Hver hefur ekki fengið þessa spurningu: "myndir þú vilja fá einhverja stöðu BARA af því að þú ert kona?? Myndiru vilja taka henni þó að þú vissir að hafir BARA fengið hana útaf því??"
Þá spyr maður á móti: "Hvernig líður karlmönnum sem á hverjum degi fá stöður BARA af því að þeir eru karlmenn?? OG hærri laun BARA af því að þeir eru karlmenn! Hvernig líður MÉR þegar ég fæ lægri laun BARA af því að ég er kona?"
Það er líka vandamál hvernig samfélagið setur stráka og stelpur í sitthvort formið strax við fæðingu. Stelpur eru aldar upp á annan hátt en strákar. Strax í leikskóla eru strákar háværari og óhlýðnari, en stelpur prúðar og stilltar. Strákar grípa fram í og æpa þar til þeir fá athygli, á meðan stelpurnar þegja og bíða eftir að röðin komi að þeim. Svona vefur þetta upp á sig þar til menn og konur mætast á vinnumarkaði, sem er mótaður af þessum formum. Það er engin furða að konur sem hafa lært að vera prúðar og þægar alla tíð séu óöruggar þegar þær koma út á vinnumarkaðinn. (Lesa má um þetta í bókinni Það er staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki hver annari, eftir Lottu Snickare og Lisu Marklund.)
Frá því fyrir 12 árum hafa konur bætt sig mikið á þessu sviði, en samt sem áður er launamunurinn sá hinn sami og konur fá enn síður stöður en karlar. Þær hafa verið yfir 60% nemenda í Háskóla Íslands síðan 1990 og sækja um stöður í alveg jafn miklum mæli og karlar. Vandamálið er því stærra en að konur séu ekki að láta í sér kveða. Jafnrétti verður að nást með öðrum leiðum.
Alltaf þegar ég sé konu í valdastöðu hugsa ég til þess hversu miklu meira hún hefur þurft að leggja á sig til að komast þangað, en mennirnir við hliðina á henni (Þó svo að þeir hafi að sjálfsögðu líka lagt mikið á sig). Hversu margar hindranir hún hefur mætt og yfirstigið, og hversu miklar hugarfarsbreytingar hafa þurft að eiga sér stað.
Horfum til dæmis á Ingibjörgu Sólrúnu við hliðina á Steingrími Sigfússyni, Geir H. Haarde eða Össuri Skarphéðinssyni. Hún hefur náð á toppinn stjórnmálum, sem er hugsanlega erfiðasti vettvangurinn fyrir konur að skara fram úr á. Hún er þessi "öfgafulli femínisti" (sem á bloggsíðum í dag eru jafnan kallaðar femínistahórur eða rauðsokkubeljur) sem hefur þurft að sæta gagnrýni ekki aðeins vegna róttækra skoðanna heldur einnig fengið endalaus komment á fatasmekk eða hárgreiðslu. Svo heyrir maður endalausar raddir "æ ég þoli ekki Ingibjörgu Sólrúnu, hún er með svo pirrandi rödd".."eða hún er svo mikil frekja!" eða eitthvað álíka ómálefnalegt. En athugið að hún hefur aldrei látið út úr sér neitt sem er jafn vert að gagnrýna og að kalla mæðrastyrksnefnd konur sem hlaupa á eftir ókeypis mat, eða tala um sætar stelpur á balli og aðrar sem gera sama gagn, já eða stela úr ríkiskassanum og afplána fangelsisdóm, eða keyra full og keyra á, eða skrifa undir stríðsviljayfirlýsingu án samþykkis þjóðarinnar, eða stela trjám og elska súludansstaði...! Miðað við þetta, er hún gagnrýnd margfalt meira (og þá er ég að tala um persónulega gagnrýni).
Ég er orðin dauðþreytt á þessum moggabloggslöggum með úreltu viðhorfin sín og rangar fullyrðingar og þætti ágætt að fá að heyra eitthvað annað en "kynjakvótar eru óréttlátir" og "hey ég er með bestu hugmynd í heimi! Metum einstaklinga eftir eigin verðleikum en ekki kyni!! Vá hvað ég er klár!". Fyrst allir hata kynjakvóta og lagalegar aðgerðir til að stuðla að jafnrétti þá verða þessir aðilar bara að gjöra svo vel að koma með aðrar lausnir!! Annars skulu þeir bara hætta í lögguleiknum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 27. júní 2007
myndi einhverjum detta í hug að setja mynd af Bush á typpinu framan á Time?
Þetta er alveg ógeðslega viðbjóðslegt. Hvernig komst þessi forsíðumynd í gegn?
Við erum að tala um Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, en ekki einhverja heimska Playboy kanínu.
Engin furða að konum gengur illa að komast að í pólitík, og sækja síður í hana, þegar virðingarstigið er svona lágt. Þetta yrði aldrei gert við karlkyns stjórnmálamann. Aldrei aldrei. Þetta er fáránleg kvenfyrirlitning.
Skamm skamm Pólverjar.
|
Reiði yfir berbrjósta Angelu Merkel með forseta og forsætisráðherra Póllands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Miðvikudagur, 27. júní 2007
ALMA úr 105 í 101
Halla Kristín Hannesdóttir, sú yndislega stúlka, er truly-madly-deeply ástfangin af Ástrala (sem elskar hana ennþá meira).
Hún er að fara til Ástralíu eftir viku og verður þar í einn og hálfan mánuð....
Á meðan....munu tveir starfsmenn skrifstofUNNAR dvelja í fallegu gulu og appelsínugulu íbúðinni hennar á Grundarstígnum. Þar verður mega stuð. Enda báðar meðlimir í klúbbnum SAFI (áður Single And Fabulous Individuals....frá og með laugardeginum og eftir að meðlimir klúbbsins voru greindir: Single and Fabulous Intellectuals).
Jájá, Lánasjóðs-krúttið og framkvæmdastýran eru að fara að gera allt brjálað....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 26. júní 2007
Texas er aulafylki - bless bless ameríski draumurinn um Nachogdoches
Ég er ekkert rosa mikið að fíla Nachogdoches lengur. Eða öllu heldur, ég er ekki að fíla Texas.
þar er löglegt að kaupa og selja klám..
...en ólöglegt að kaupa og selja titrara...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 26. júní 2007
Sól sól nammi namm!
ég óska öllum gleðilegs dags sólar og blóma og vona að allir verði vinir og elski náungann, því það er jú ósk sólarinnar. Annars fer hún.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




annapala
dagga
fanney
thorir
agnar
magnusmar
olafurfa
salvor
audurg
agustolafur
asthora
dofri
egillrunar
ernamaria
gastone
gummisteingrims
helgatryggva
ingo
id
joneinar
hugsadu
kollaogjosep
konur
sigruningibjorg
danmerkufarar
soley
solrun
fletcher
steindorgretar
sukie
truno
ugla
sverdkottur
vefritid
tobbasandra